Reyndi að senda þetta í pósti en fékk þau svör að netfangalisti Alþingis væri óvirkur???

Virðulegu meðlimir löggjafarsamkomu Íslands, Alþingis

Ég undirrituð lýsi hér með eftir aðgerðastefnu í þeim hörmungarmálum sem hvolfdust yfir þjóðina, eins og himnarnir hefðu hrapað ofan á okkur 6.október s.l.


 Hvar er ríkisstjórnin og hvað er hún að gera?
 Okkur, hinum almennu borgurum þessa lands finnst við hafa verið skilin eftir í kolsvörtu tómarúmi sem enginn veit hvar endar. Hvers lags silagangur og upplýsingaskortur er þetta? Við kjósendur eigum rétt á að fá reglulega og með skilmerkilegum hætti upplýsingar um gang mála. Ríkisstjórnin ruddi útúr sér einhverju í upphafi hörmunganna einhverju sem þeir kölluðu aðgerðapakka til aðstoðar heimilum. Það voru alls kyns loforð um sveigjanleika bankanna, færslu lána frá bönkum til ÍLS, aukið svigrúm hér og frysting þar o.s.frv. Fæst af þessum loforðum hafa litið dagsins ljós og þau sem eitthvað hefur verið aðhafst í standa bara sumum til boða og öðrum ekki.

 Þetta ástand sem hér ríkir er fullkomlega óþolandi og stórhættulegt, beinlínis lífshættulegt sumu fólki. Ríkisstjórnin verður að átta sig á og viðurkenna sinn hlut í því hvernig fyrir þessari þjóð er komið. Ekki kenna alltaf öðrum um. Og þeir sem stjórna verða að vera sjáanlegir fólkinu í landinu.
 Unga fólkið okkar sem er nýbúið að stofna heimili og er með börn á framfæri er í mikilli félagslegri og að ég nú ekki tali um efnahagslegri hættu. Sumir eru við það að gefast upp og gefa skít í allt sem heita afborganir hvort heldur er af bílum eða íbúðum. Aðrir eiga eftir að gefast upp og hætta að nenna að lifa ef ekki verður eitthvað það gert sem gefur mönnum von um að einhverntíma taki eitthvað betra við. Ekki bara einhvert bull eins og kemur frá "hæstvirtum" fjármálaráðherra um að við verðum búin að helminga skuldir okkar eftir 2-3 ár. Komið með einhverjar raunhæfar tillögur og upplýsingar sem endurvekja traust fólks á því að það verði hægt að lifa í þessu landi áfram og endurvekja traust fólks á stjórnmálamönnum. Það er 0% núna.

Virðingarfyllst, Guðrún Olga Clausen,  grunnskólakennari, Lyngheiði 19, 810, Hveragerði. Kt.0106503569


P.S. Guð blessi Ísland (eins og einhver sagði).


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Það er örugglega búið að loka á netföngin af því það nennir enginn að lesa póst frá landanum Þetta er flott bréf hjá þér og ég vona að skilaboðin komist til skila til réttra aðila.  Þú getur líka birt þetta sem opið bréf til ríkisstjórnarinnar.

Kveðjur til allra.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 17.1.2009 kl. 17:24

2 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Vil bæta við að stjórnvöld virðast ekki skilja hversu kvíðið fólk er og hvað það upplifir mikla kúgun.  Þetta er hættulegt ástand.  Það eru bara glæpamenn sem fara svona með fólk.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 17.1.2009 kl. 17:26

3 Smámynd: Guðrún Olga Clausen

Takk Magga mín

já ég ætti kannski að senda Mogganum þetta. Það er alveg rétt að það er eins og stjórnvöldum sé nokk sama hvernig fólki líður.

Guðrún Olga Clausen, 17.1.2009 kl. 20:07

4 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Þeir hefðu nú haft gott af því að lesa þetta mín kæra.

Heimir Eyvindarson, 20.1.2009 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún Olga Clausen

Höfundur

Guðrún Olga Clausen
Guðrún Olga Clausen
58 ára enskukennari í grunnskóla. Móðir 3ja  fullorðinna barna, amma 5 sætra stelpna og eins lítils stráks. Ferðalangur,Bítlaaðdáandi, áhugakona um mannréttindi,smá spennufíkill sem elskar lífið, börnin mín, barnabörnin mín, manninn minn og alla aðra fjölskyldumeðlimi.

Spurt er

Hvar er ríkisstjórnin?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 685

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband